wþriðjudagur, mars 29, 2005


Guðmundur orðinn Hagfræðingur!

Ég var rétt í þessu að fá fregnir af því að Iðnaðar og viðskiptaráðuneytið væri búið að samþykkja umsókn mína um að fá að kalla mig Hagfræðing. Margir hugsa þá eflaust, þarf að sækja um það? Allir sem klára skóla erlendis þurfa að sækja formlega um nafnbótina en hún er sem sagt komin í hús. Mjög gleðilegt!

Operation Six Pack fór af stað í síðustu viku en þetta verkefni snýst um að koma púlsinum niður og vöðvum á hina og þessa staði sem hafa verið án þeirra. Líkamsræktarstöðin er Nordica Spa og nú er verið að massa þetta, 5 sinnum í viku hvorki meira né minna!

Guðmundur Arnar
Hagfræðingur


By Gudmundur at
3/29/2005 03:35:00 e.h.

Spjallaðu við mig: Skrifa ummæli